Archive for July, 2007|Monthly archive page
Meira af Natures Home
Var að klára enn eina blokkina svo núna eru bara 8 blokkir eftir. Er orðin svo spennt að klára.

Þá er að drífa sig í að byrja á 23. hlutanum og stefni á að klára hann um helgina.
Erla Björk
Natures Home
Í dag 27. júlí 2007 er akkurat 1 ár síðan ég byrjaði á Natures Home og hér er staðan.

Ég er alveg að verða búin með 22 blokkir af 30. Ég ætlaði nú eiginlega að vera löngu búin með þessa stóru mynd en ég held að það sé nauðsynlegt að taka sér smá hlé öðru hverju. Nú er stefnan að klára fyrir jól. Ég er alveg búin að ákveða að byrja ekki á neinu öðru fyrr en þessi er búin. Það verður þvílíkur gleðidagur.
Erla Björk
Endalausar girðingar
Var að enda við að klára enn eitt húsið í Natures Homes.

Mér finnst ég búin að vera svooooo lengi með þetta hús. Og girðingarnar voru endalausar. En þetta hafðist á endanum og nú er ég búin með 21 blokk af 30. Svo er ég búin með 2 hálfar blokkir þannig að þetta fer að styttast.
Á föstudaginn er akkurat ár síðan ég byrjaði á þessari mynd og þá ætla ég að setja inn stöðumynd af því sem er komið. Þannig að nú verður bara setið og saumað þangað til.
Erla Björk
Snjókarlar – 1 af 10
Ég eyddi gærdeginum í að þrífa allt húsið mitt því ekki veitti af. Ég er búin að sitja yfir Natures Homes alla vikuna og sá að það var þörf á að standa aðeins upp. Í gærkvöldi ákvað ég að taka upp snjókarlapúðann minn og sat yfir honum til 3.30 í nótt. Það voru allir sofnaðir og þá er besti tíminn til að sauma. Náði að klára fyrsta snjókarlinn og er aðeins byrjuð á hattinum á næsta fyrir neðan. Kláraði svo ljósaseríuna í hádeginu í dag.

Ég er að spá í að sauma í þessum alla laugardaga og vonandi verður hann þá tilbúin fyrir jól.
Í dag ætla ég að sauma í Natures Homes. Ég er langt komin með enn eitt húsið. Það er samt svo ótrúleg tímafrekt og mér finnst ég vera búin að vera endalaust með það. En flott er það. Hendi inn mynd um leið og ég er búin.
Hún dóttir mín kom mér á óvart í gær. Hún var að sýna mér hvað hún væri liðug og var voðalega stolt af sjálfri sér. Það var ótrúlegt hvað hún gat sveigt sig því hún hefur aldrei verið í neinum íþróttum nema í skólanum. Vinkona hennar er í fimleikum og hana langar að fara að æfa með henni. Læt 2 myndir fylgja með.


Kveðja frá Erlu Björk og Marín Mist
Fyrir börnin mín
Þetta eru ævintýri barnanna minna. Langar að geyma þetta hér inni.
Fyrstur er Alexander Örn
http://www.myabcadventure.com/index.htm?movieid=37CDC3CF-8F8B-481C-A142-C8F4CC01C34B
Svo er Einar Arnar
http://www.myabcadventure.com/index.htm?movieid=2551C46F-69E3-4CD3-AB09-552FAB066EB0
Og síðust er Marín Mist
http://www.myabcadventure.com/index.htm?movieid=CCDBC12D-96CC-420A-A276-D4700A6D36CF
Þá er bara að vona að þetta virki allt saman.
Erla Björk
Smá auglýsing
Mig langaði aðeins að sýna ykkur hvað hún mamma mín er að vinna í þessa dagana. Hún er á fullu að sauma í handklæði og viskustykki. Hún er rétt að byrja að byggja upp lager og vinna í hugmyndum. Hér eru nokkrar myndir.


Barnahandklæði

Stjörnumerkjahandklæði

Viskustykki
Hún verður með sýningu á morgun ásamt öðrum og það væri æðislegt ef einhverjar saumakonur gætu kíkt við.
Hér kemur auglýsingin:
Allir velkomnir.
Opið hús fimmtudaginn 19 júlí frá klukkan 16–19 á Krókháls 10. Gengið inn ofan við húsið.
ditto.is Saltkristall og soyakerti
Síðustu dagar útsölunar. 2 fyrir 1 á kertum og kertastjökum.
yndisseidur.is Skartgripir, krem, olíur og baðbombur
isundur.is Nýkomið frábær krydd og ídýfur
Útsaumuð handklæði og viskustykki frá Kristínu. Nokkrir litir.
Alls konar tilboð í gangi.
Hlökkum til að sjá ykkur
Apríl kisa
Var að klára kisu númer 2 eftir Margaret Sherry. Það er virkilega gaman að sauma þær og nú eru bara 10 eftir. Ég ætla samt að bíða með að gera fleiri og hella mér út í Natures Homes. Hún Drífa kveikti aldeilis í mér í vikunni og maður verður að nýta sér það.

Erla Björk
Fleiri afmæliskort
Ég saumaði afmæliskort fyrir hana Siggu. Valdi að gera stjörnumerkið hennar.

Ég læt líka fylgja mynd af kortinu sem ég gerði fyrir Björgu. Hún fékk líka stjörnumerkið sitt.

Var að koma úr hjólatúr með fjölskyldunni. Hjóluðum úr Grafarholtinu og í gegnum allan Grafarvoginn og þetta tók um 3 tíma. Marín var orðin alveg uppgefinn enda voru ansi margar brekkur á heimleiðinni. Lenti soldið á mér að teyma hjólið hennar. En alveg frábær dagur og ótrúlegt að hafa Magga heima í heilan dag.
Erla Björk
Afmæliskort
Ég saumaði þetta kort í gærkvöldi. Marín Mist fór svo í afmæli í dag og gaf skólasystur sinni það. Tók ekki nema 2 tíma að sauma það og ganga frá því. Marín valdi sjálf efnið en það er 14ct aida Rainbow Glitter. Allt sem glansar er svo heillandi!

Ég byrjaði að vinna í dag aftur eftir sumarfrí. Ég var nú alveg farin að venjast því að vera í fríi en svona er þetta bara. Er strax farin að hlakka til næsta sumarfrís.
Erla Björk
Ný efni
Pósturinn var að banka upp á hjá mér með efnin sem ég pantaði frá Sugar Maple Fabrics. Og viti menn mér var bara réttur pakkinn og ekki rukkuð um krónu. Bara ef það væri alltaf svona.
Ég pantaði þessi efni:

Moon Princess fyrir Fairy Moon
Var samt að bera þetta efni saman við efnið sem Stargazer er á og er ekki viss um að þessi tvö efni geti hangið saman hlið við hlið. Þannig að kannski panta ég annað fjólublátt fyrir Fairy Moon og nota þetta í eitthvað annað.

Fay´s Circle fyrir Firefly Fairies
Mér finnst þetta alveg geggjað efni og væri til í að byrja strax á þessari mynd.

Northen sky fyrir Petal Fairy og Bliss Fairy
Varð fyrir smá vonbrigðum með þessi efni. Á netinu voru þetta blá efni með ‘’skýjum”. En komin til mín er minnst af þeim blátt og mikið af gulum, grænum og fjólubláum tónum. Svo ég veit ekki alveg hvort ég nota þau í það sem ég ætlaði. En ég hugsa að þau gætu samt alveg gengið. Annars er ekkert mál að panta bara fleiri efni.
Erla Björk
Comments (2)
Comments (6)
Comments (3)