Archive for August, 2007|Monthly archive page
Gengur hægt en örugglega
Var að klára enn eina blokkina af Natures Home. Ætlaði nú eiginlega að klára hana síðustu helgi en það tókst nú ekki alveg.

Og þá er staðan orðin svona. Aðeins 7 blokkir eftir af 30.

Nú er ég að fara að gera síðasta húsið í myndinni. Er farin að hlakka mikið til að klára þetta stykki en er ekki enn farin að sjá endann. Stærstu blokkirnar eru allar eftir eins og sumir hafa verið duglegir að benda mér á… hahaha…
Ég er búin að vera að skoða gömul saumablöð undanfarið og ég er búin að sjá svo margt sem mig langar til að sauma. Plús öll munstrin sem ég hef keypt á ebay og öðrum vefsíðum. Það dugar mér örugglega langt fram á elliárin. En allt er í banni þar til Natures Home er tilbúin.
Erla Björk
Snjókarlar 3 af 10
Þá eru þeir orðin 3. Sat til 3.30 í nótt yfir þeim þriðja og kláraði svo afturstinginn í morgunn. Bætti svo við nokkrum snjókornum í dag og lengdi í jólaseríunni þeirra. Mér finnst svo ofsalega fallegir litir í þeim og þeir eru hver öðrum glaðari.

Þetta er búin að vera alveg frábær helgi og æðislegt að fá einn auka dag. Ég er búin að sitja og sauma alla helgina á náttbuxunum og með fullt af nammi. Það gerist ekki betra en það.
Erla Björk
2 af 10 snjókörlum
Var að klára annan snjókarl í snjókarla púðanum mínum.

Annars krassaði tölvan mín í dag og er komin í viðgerð. Vonandi þarf ég ekki að bíða lengi eftir að fá hana til baka og vonandi er ekki mikið að.
Erla Björk
Comments (6)
Comments (1)
Leave a Comment