Gengur hægt en örugglega
Var að klára enn eina blokkina af Natures Home. Ætlaði nú eiginlega að klára hana síðustu helgi en það tókst nú ekki alveg.

Og þá er staðan orðin svona. Aðeins 7 blokkir eftir af 30.

Nú er ég að fara að gera síðasta húsið í myndinni. Er farin að hlakka mikið til að klára þetta stykki en er ekki enn farin að sjá endann. Stærstu blokkirnar eru allar eftir eins og sumir hafa verið duglegir að benda mér á… hahaha…
Ég er búin að vera að skoða gömul saumablöð undanfarið og ég er búin að sjá svo margt sem mig langar til að sauma. Plús öll munstrin sem ég hef keypt á ebay og öðrum vefsíðum. Það dugar mér örugglega langt fram á elliárin. En allt er í banni þar til Natures Home er tilbúin.
Erla Björk
6 comments so far
Leave a reply
*syngur*Svarthvíta heeeetjan mín!
Ekki sma saumaskapur tharna a ferdinni. ‘You’re on fire’
Jeminn einasti hvað ég öfunda þig af því að vera komin svona langt!
Vá vá vá dugnaðurinn í þér… mér veitti ekki af að smitast af þér á erfitt með að komast í gang eftir fríið.
Vá þær eru aldeilis flottar þessar myndir………..
þetta er ekkert smá verk og flott!
mátt sko vera stolt af þér