Archive for September, 2007|Monthly archive page

Sumarbústaðaferð

Um helgina fór ég með saumakonunum úr Allt í kross í sumarbústaðaferð. Helgin var alveg yndisleg og mikið saumað, hlegið og bara ‘’smá” drukkið. Ég gaf mér ekki mikinn tíma í svefn um helgina og er svo sannarlega að finna fyrir því núna. En svona ferðir eru alveg lífsnauðsynlegar og ég er strax farin að hlakka til næstu ferðar.

Hér getið þið séð myndirnar úr ferðinni.

Takk fyrir frábæra helgi stelpur.

Erla Björk

Ný stöðumynd og afmæli

Var að klára enn einn hlutann af Natures Home. Og þá á ég bara neðstu línuna eftir. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta gengur eitthvað hægt þessa dagana. Samt finnst mér ég ekki gera annað en að sauma í þessu. Ég ætla samt að leggja þetta aðeins til hliðar þar til eftir sumarbústaðaferðina næstu helgi. Byrja svo strax aftur á mánudaginn. En þetta er hlutinn sem ég var að klára.

Og þá er staðan svona. Bara 5 blokkir eftir af 30.

 Marín Mist átti afmæli í dag. Nú er litla barnið mitt orðið 7 ára. Við héldum fjölskylduafmæli á sunnudaginn og í dag bauð hún vinkonunum úr bekknum og einum strák – alls 15. Það var rosa fjör og hún fékk fullt af flottum gjöfum. Við gáfum henni nýtt hjól þar sem það gamla var orðið of lítið of hálf bremsulaust.

Svo verð ég að fá að sýna afmæliskökurnar hennar. Hún er mikill aðdáandi Dóru og Klossa og því fékk hún að sjálfsögðu Dóru köku. Fyrri kakan var í fjölskylduafmælinu og seinni í vinkonuafmælinu. Mér finnst þær svo flottar.

             

Erla Björk

Nálarúlla fyrir Eddu

Ég saumaði þessa nálarúllu fyrir Eddu. Ég var í smá vandræðum með hvaða munstur ég ætti að gera en þessi varð svo fyrir valinu. Hér er hún full saumuð og komnar í hana 4 stórar perlur.

Og hér er hún tilbúin og á leið til Eddu.

Njóttu vel Edda mín.

Erla Björk

Nálarúllan mín frá Hafrúnu

Ég fékk nálarúlluna mína í gærkvöldi í saumaklúbb hjá Guðbjörgu. Það var Hafrún sem gerði mína nálarúllu og ég er rosalega ánægð með hana. Hún er alveg spes fyrir mig því nafnið mitt er í miðjunni á henni. Takk kærlega fyrir mig elsku Hafrún.

Nálarúllan frá mér verður keyrð út í kvöld. Hlakka mikið til að afhenda hana nýjum eiganda.

Erla Björk

Síðasta fuglahúsið

Var að klára síðasta fuglahúsið í Natures Home. Ótrúlega mikið um litabreytingar og ég hélt að blómin tækju aldrei enda. En þetta tókst að lokum og hér er útkoman.

Þá er staðan orðin svona. ”Bara” 6 blokkir eftir af 30. Ótúlegt!!!

Nú ætla ég að snúa mér að nálarúllunni fyrir nálarúlluskiptin í Allt í kross. Þetta verður mín fyrsta nálarúlla og ég er orðin spennt að sjá útkomuna. Vonandi verður ekkert mál að ganga frá henni. Mig kvíður mest fyrir því. En það verður gaman að afhenda hana nýjum eiganda.

Erla Björk