Archive for October, 2007|Monthly archive page
Fullt af garni
Pósturinn var að banka upp á hjá mér með pakka. Og viti menn enginn tollur. Þvílík hamingja. Ég pantaði mér DMC garn á ebay. Vann 2 sett með 334 dokkum hvort, sem sagt 668 dokkur. Svo þegar ég opnaði pakkann þá voru þar 2 pokar báðir merktir 334 og svo var einn lítill poki með auka 85 dokkum sem seljandi hefur bara látið fylgja með. Sú fékk sko gott feedback. Ég er í skýjunum.

Vill einhver koma í ”floss bath”?
Loksins loksins
Þessi skammtur tók aðeins of langan tíma að mínu mati. En hér er ný mynd.

Og þá er staðan svona. Bara 3 blokkir eftir. Jeii ég er loksins farin að sjá fyrir endann á þessu maraþoni.

Mér datt allt í einu í hug um daginn þegar ég var að sauma að það væri gaman að vita hvað maður yrði lengi að rekja alla myndina upp. Ætli það myndi taka lengri eða styttri tíma en að sauma hana? Vá hvað ég er orðin geðveik á þessari mynd. Langar mest til að pakka henni niður en……..ÉG SKAL!!!
Erla Björk
Kanínan og tréð
Var að klára enn einn hlutann af Natures Home. Nú er ég komin í neðstu línuna svo það er ekki svo mikið eftir. Tréð er allt komið og kanínan sem mér var búið að hlakka svo til að gera er loksins tilbúin. Það var alltaf svo langt í hana og það var svo gaman að sauma hana og sjá hana koma í ljós. Og hún er bara rosa sæt.

Og þá er staðan svona. Bara 4 blokkir eftir af 30.

Planið er að taka 2 vikur í hvern hluta sem eftir er. Lokadagurinn er því 2.desember 2007. Haldið þið að mér takist það? Ég er búin að vera 13 daga með þennan hluta svo ég er degi á undan áætlun. Það væri gott að fá smá pepp því ég er orðin pínu leið á þessari mynd. Mér finnst alltaf svo mikið eftir og það gengur voða hægt að sauma því litaskiptingarnar eru endalausar.
Erla Björk
Comments (11)
Comments (5)
Comments (7)