Archive for November, 2007|Monthly archive page
Saumahornið mitt
Spurning vikunnar í Allt í kross var þessi:
Ertu með sérstakt “saumahorn” einhvers staðar í húsinu? Áttu mynd af saumahorninu þínu?
Hvernig finnst ykkur best að vera þegar þið saumið út. Situr þú í sófa eða við borð?
Hvert er drauma “saumahornið” ? Hvað vantar þig til að geta búið það til?
Ég sit við borðstofuborðið þegar ég er að sauma Nature´s Home. Ég get ekki hugsað mér að sitja með allt stykkið í fanginu því þá verður allt svo þvælt þegar þetta nuddast stanslaust saman.

Þegar ég geri ”aðeins” minni myndir en Nature´s Home þá finnst mér æðislegt að vinna við saumastandinn. Það eina sem vantar þar er aðstaða fyrir allt garnið. Er að spá í að fá mér lítið borð til að hafa við hliðina á mér.

Ef ég geri svo pínulítil verkefni eins og nálarúllu eða eitthvað þess háttar þá hendi ég mér bara í sófann.
Í framtíðinni er ætlunin að útbúa saumaherbergi. Ég bíð bara eftir að elsti sonurinn flytji að heiman og þá ætla ég að flytja allt saumadraslið mitt inn í herbergið hans. Það verður bara næs.
Erla Björk
Ný staða af Nature´s Home
Var loksins að klára enn einn hlutann af Nature´s Home. Hann er sennilega búin að taka mig sirka mánuð. Ég saumaði og saumaði en það sást engin árangur. Þannig að 2 vikna planið mitt er gjörsamlega búið að vera. Nú verð ég bara ánægð ef ég næ að klára fyrir jól.

Svo nú er staðan svona. Bara 2 hlutar eftir af 30.

Er þetta ekki orðið glæsilegt? Alveg að verða búið!
Erla Björk
Tumi og Patti
Við ákváðum í gær að fá okkur annan Chihuahua hund. Þetta er 10 vikna strákur og hann er strax orðin einn af fjölskyldunni. Hann er bara krútt eins og þið sjáið og hann er búinn að fá nafnið Patti.

Við áttum fyrir hann Tuma okkar sem er rúmlega 2 ára. Hann er nú ekki alveg á því að hleypa þeim litla í allt dótið sitt og lætur hann sko heyra það. Hér er mynd af honum.

Og til að sýna stærðarmuninn á þeim þá er ein mynd í viðbót. Hún er pínu óskýr því það var eiginlega ekki hægt að fá þá til að vera kyrra.

Börnin eru alveg í skýjunum en það verður nóg að gera næstu vikur við að siða þann litla.
Comments (5)
Comments (4)
Comments (4)