Archive for December, 2007|Monthly archive page
Jólasveina Biscornu
Ég ákvað að gera einn jóla biscornu og féll alveg fyrir þessu munstri frá Stitchwork. Það heitir Santa Round og þetta tók mig ekki nema 2 daga. Frágangurinn var aðeins að flækjast fyrir mér en ég fékk dygga síma aðstoð frá henni Lindu litluskvís. Takk fyrir mig Linda, þú bjargaðir mér alveg. En hér eru myndir. Það átti að vera pakki á bakhliðinni líka en því miður þá brotnaði hann svo ég ákvað að strekkja ekki alveg eins mikið á miðjunni til að halda alla vega öðrum þeirra.

Framhliðin

Bakhliðin

Frá hlið
Skeggið á jólasveinunum var saumað með Wisper garni frá Rainbow Gallery. Það er loðið og það var alveg skelfilegt að sauma með því. Það verður allt svo ójafnt en ég er nokkuð sátt við útkomuna.
Erla Björk
Búin með Nature´s Home
Ég var að klára Nature´s Home. Börnin mín horfðu á mig taka síðustu 3 krossana og það brutust út þvílík fagnaðarlæti og mikð klapp. Það var eins og ég hefði unnið á heimsmeistaramóti. Frábært! Hér er mynd af síðasta hlutanum.

Og hér er svo heildarmyndin. Ég er svooo…. montin!

Nú verða allir að kommenta takk!
Nú ætla ég að taka mér smá saumajólafrí. Ég er orðin krosseygð eftir að sitja við þetta stykki allan desember. Svo ég segi bara við alla: Gleðileg jól og hafið það sem allra best yfir hátíðirnar og munið að það er skylda að borða konfekt.
Erla Björk
Bara einn hluti eftir
Var að klára næst síðasta hlutann af Nature´s Home. Nú fer þetta alveg að taka enda. Þið eruð örugglega orðin hundleið á þessari mynd minni. Alla vega er ég orðin soldið þreytt. Á þessum hluta vantar að stinga í kringum stútinn á blómakönnunni en það verður bara gert um leið og kannan sjálf.

Það er engin heildarmynd núna. Ég ætla ekki alveg að ofgera ykkur en það verður þá bara meira spennandi næst.
Erla Björk
Jóladagatölin komin upp
Við settum jóladagatöl barnanna upp í vikunni og erum búin að vera að bæta nokkrum pökkum á á hverjum degi. Kláruðum svo loksins í gærkvöldi og þau opnuðu fyrsta í morgun. Ekkert smá spennandi. Alexander á jólasveinaandlitið, Einar á Jólasveininn í stiganum og Marín krakkana sem eru að fara í háttinn.

Gleðilega aðventu öll saman.
Erla Björk
Comments (6)
Comments (18)
Comments (6)