Archive for March, 2008|Monthly archive page
Skærapúði frá Siggu
Hún Sigga bankaði upp á hjá mér í gær og færði mér þennan skærapúða og súkkulaði sem kláraðist á engum tíma.

Takk kærlega fyrir mig Sigga. Mér finnst hann rosalega flottur. Og súkkulaðið var auðvitað algjör snilld!
Skærapúðaskipti
Ég tók þátt í skærapúðaskiptum í Allt í kross. Ég átti að gera skærapúða fyrir Sesselju og valdi að gera þennan.

Framhliðin

Bakhliðin
Munstrið er úr Victoria´s Quaker og ég saumaði hann með Imitation Silk (gervisilki) sem ég keypti svo mikið af í London.
Ég bíð svo bara spennt eftir að fá minn skærapúða. Það verður gaman að vita frá hverjum hann er.
Fermingarkort
Það er ekki búið að vera mikið að gerast á blogginu mínu síðasta mánuð. Það er nú ekki af því að ég hef ekkert saumað heldur var ég að klára smá leyniverkefni sem ég get bráðum farið að sýna.
Nú er ég dottin í fermingarkortin. Er búin að fá nokkrar pantanir og það gengur vel að vinna úr þeim. Svo þarf ég auðvitað að sauma eitt handa honum Alexander mínum sem fermist 13. apríl.

Ég hef aðeins verið að sauma í hafmeyjunni minni. Var að klára blómin á höfðinu á henni og það var frekar tímafrekt.

Comments (2)
Comments (2)
Comments (5)