Archive for April, 2008|Monthly archive page
Magnús og Erla
Var að klára fyrsta hjartað í Quilted Hearts Garden. Sissú rétt marði að vera á undan mér. Í hjartanu átti að standa Bless this home en þar sem við vildum ekki hafa enskan texta í myndinni þá eftir töluverða umhugsun ákváðum við að hafa nöfnin okkar og makanna. Við ætlum svo að íslenska allan texta. Vonandi á það eftir að ganga vel. En hér er mynd af hjartanu.

Og eins og í Nature´s Home þá er ég að spá í að sýna ykkur alltaf heildarmynd. Sjáiði bara hvað efnið kemur flott út. Við erum svo rosalega ánægðar með það.

Quilted Hearts Garden
Já ég er komin aftur í geðveikina. Ákvað að ég yrði að sauma nýja afganinn frá Stoney Creek. Ég plataði Sissú með mér í þetta verkefni og við fórum í kapp um helgina með fyrsta hlutann. Mér til ómældrar gremju þá vann Sissú mig. En ég hélt ótrauð áfram og er búin með 2 fyrstu hlutana. Myndin er 7×7 hlutar – alls 49. Fyrsta myndin er svo sem ekkert merkileg. Bara blómarammi sem verður í öllum köntunum.

Myndin er saumuð í 16 count Cloud Pink Aida frá Sew it all. Geggjað flott efni.
Alexander Örn fermingardrengur
Í dag 13. apríl fermdist hann Alexander minn. Athöfnin fór fram í Árbæjarkirkju kl. 13.30. Það voru bara 8 krakkar sem fermdust þennan dag. Allt gekk rosalega vel og honum tókst að muna allt sem hann þurfti að muna. Hér er mynd þar sem verið er að ferma drenginn.

Við héldum veisluna svo heima kl. 16.00. Maggi sá um fermingartertuna og mamma bakaði kransakökuna. Svo var ýmislegt annað góðgæti sem við hjálpuðumst öll að við að baka. Hér er svo mynd af okkur foreldrunum með fermingarstrákinn okkar sem við erum svo stolt af.

Álfheiður Amý
Þegar Hafrún tilkynnti að hún ætti von á lítilli dóttur þá hugsaði ég með mér að það væri gaman að sauma eitthvað handa þeirri litlu. Ég ákvað að sauma þessa mynd sem er hönnuð af Ruth J. Morehead og hafa hana vel bleika.

Svo fékk ég hjálp frá mömmu sem bjó til púða fyrir mig. Og hér er útkoman.

Myndin er saumuð á 32 count Linen Cloud Pink
Comments (7)
Comments (6)
Comments (6)