Archive for May, 2008|Monthly archive page
Pinkeep fyrir Lindu
Ég bjó til þennan Pinkeep fyrir Lindu í Pinkeepskiptunum í Allt í kross. Það er frekear fyndin tilviljun að við vorum dregnar saman. Þetta er fyrsti pinkeepin sem ég geri og ég held hann hafi bara heppnast vel. Efnið sem hann liggur á er efnið sem er á bakhliðinni.

Free Pattern from My Aunts Attic
Stitched 1 over 1 on 28 ct Jobelan Solo from Silkweaver
with Imitation Silk from Haviland Embroidery
Ég skilaði pinkeepnum í seinna laginu. Ástæðan er að litli voffinn okkar hann Patti er búinn að vera týndur núna í rúmar 2 vikur. Öll leit hefur engan árangur borið og maður hefur ekki getað fest sig við neitt annað en að leita eða hugsa til hans. Ég læt fylgja með mynd af Marín og Patta á góðri stund. Marín var að horfa á teiknimyndir og Patti steinsvaf í fanginu á henni á meðan. Við þráum ekkert heitar en að finna hann aftur og koma honum heim í hlýjuna og öryggið. Svo yrði hann að sjálfsögðu knúsaður endalaust.

Pinkeep frá Lindu
Ég var að fá minn pinkeep úr pinkeepskiptunum og hann var frá Lindu. Takk fyrir mig elsku Linda. Hann er algjört æði og ég er í skýjunum.

Ég er langt komin með minn. Á eftir nokkra krossa og svo að ganga frá honum. Hlakka svo mikið til að afhenda hann nýjum eiganda.
Comments (3)
Comments (3)