Archive for August, 2008|Monthly archive page
Little House Neighbourhood
Við komum heim frá Florída síðasta föstudag. Við lentum í Hitabeltisstorminum Fay síðustu dagana þannig að það ringdi mjög mikið og það var smá vindur. Ekki mikill samt í okkar augum en við sáum í búðunum að fólk var að byrgja sig upp af vatni og mat eins og það myndi lokast inni í viku eða svo. Eina sem við keyptum var kók og snakk og þá vorum við góð. Við skelltum okkur svo bara í sund í rigningunni og fórum að versla og það var bara fínt.
Strax og við komum heim á föstudaginn þá skellti ég mér í sumarbústað í Húsafelli með 5 góðum saumakonum. Ég byrjaði á Little House Neighbourhood úti og ákvað að halda áfram með það í bústaðnum. Ég átti eftir að velja handlitað garn í húsin og stelpurnar hjálpuðu mér að velja það. Það tók pínu langan tíma því ég var með svo mikinn valkvíða. Held ég hafi rakið fyrsta húsið upp 2svar áður en ég varð ánægð. En hér er mynd af fyrsta húsinu.

mix of Bramble Busch and Roasted Chestnut
Nóg að gera í Florída og nýtt saumadót
Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur. Við fórum í aðalgarðinn í gær Magic Kingdom. Við vorum mætt í garðinn um 9.30 og fórum heim rétt fyrir 10 um kvöldið. Mjög langur dagur en líka lang skemmtilegasti garðurinn.
Strákarnir höfðu það af að draga mig í einn rússíbana. Hann virkaði ekkert svo hræðilegur að sjá en ó mæ god ég öskraði allan tímann.
Marín skemmti sér vel í garðinum. Við fórum í hringekjur og meira að segja eina sem var mjög hátt uppi og við sáum yfir allan garðinn. Hún ríghélt að vísu í mig og ég held hún væri ekki til í að fara aftur. Við fórum svo öll í bollana sem ég man eftir síðan ég fór í Disney þegar ég var 7 ára. Geðveikt gaman að rifja það upp.
Við fórum svo saman í GoKart. Marín keyrði Magga, Alexander keyrði mig og Einar var einn í bíl. Ég er nú ekki viss um að ég láni Alexander bílinn minn þegar hann fær bílpróf. Hann var í því að keyra upp í kant og klessa á aðra.
Það var skrúðganga í garðinum um miðjan dag og svo önnur um kvöldið sem var auðvitað miklu flottari. Rosalega gaman að sjá hvað er lagt mikið í þetta.
Ef þið hafið áhuga á að sjá myndir úr ferðinni okkar biðjið þá bara um það í kommenti og ég skal senda ykkur slóðina á emaili.
Á þriðjudaginn fór ég í saumabúð sem heitir Needle Orts. Ég varð fyrir smá vonbrigðum með þessa búð. Ekkert sérstakt úrval og allt eitthvað svo óaðgengilegt. En ég keypti fullt af handlituðu garni og eitt kit og nokkur skæri. Það er aldrei svo slæmt að maður geti ekki keypt eitthvað.

The Cat´s Whiskers
The Garden Chair
Fullt af Weeks Dye Works
Fullt af Cresent Colours
Nokkur skæri
Ég fór svo í dag aftur í Needle Craft World og sótti það sem var pantaði fyrir mig í síðustu ferð. Hún er alveg frábær þessi kona sem á búðina og gaman að kjafta við hana. En þetta er það sem ég fékk.

Country Cottage Needlework
Forest Snowfall
Needlework Shop
Joyful Summer
Little House Needlework
All Dolled Up
The Sweetheart Tree
Don´t Bug Me

Just Nan
When Barnabee Met Bella og efni
Waxing Moon Design
Winter Sampler
One Sheep Open Sleigh
Nokkra WDW þræði

Raise The Roof
Snow Fence + buttons
Heart In Hand
Perfect Snowman + buttons
Bent Creek
The Cold Snowman
Það á eftir að vera svo gaman hjá mér í vetur að sauma. Nóg af verkefnum til að velja úr.
Gaman í Florída
Það er búið að vera mjög gaman hér í Florída. Það er alltaf að hitna og hitna. Fyrstu vikuna var hitinn voða notalegur en nú gerir maður ekki annað en að flýja í skuggann. Það er líka búið að vera sól alla daga þar til í dag að við vöknuðum við þvílíkar þrumur að okkur stóð ekki sama. Þegar við vorum komin fram í stofu þá lýstist upp garðurinn og svo kom hellidemba.
Við ákváðum að kaupa miða í alla Disney garðana og sleppa hinum þar til í næstu ferð. Við erum búin að fara í Epcot, Animal Kingdom og Blizzard Beach sem er vatnsleikjagarður.
Á þriðjudaginn fórum við í Epcot. Það var skemmtilegra en ég hélt. Við fórum í tæki sem heitir Soarin. Þá er eins og maður sé að fljúga og það var alveg geðveikt. Marín kom titrandi úr tækinu en fannst samt gaman. Strákarnir fóru í einhver tæki og skemmtu sér vel. Við fórum líka í Nemó ævintýraferð sem var ekkert spes. Við fórum í bátsferð um verndun jarðarinnar. Við fórum svo í 3D bíó á Honey I shrunk the audience. Það var frekar óþægileg reynsla og Marín grét nánast allan tímann. Sem betur fer tók þetta bara 20 mínútur. Þetta er miklu raunverulegra en í bíóum heima. Þegar músum var sleppt í myndinni þá var settur blástur á fæturnar á manni og manni fannst eins og það væru mýs að strjúkast við mann. Svo þegar hundurinn hnerraði þá fékk maður vatnsúða á sig. Við vorum voða fegin að komast út.
Á miðvikudaginn fórum við í Animal Kingdom. Við byrjuðum á því að heilsa upp á Terku, Guffa og Andrés. Við vorum svo búin að fá miða á It´s though to be a bug og drifum okkur á það. Við höfðum ekki hugmynd um hvað við vorum að fara í. Héldum að þetta væri bara einhver sýning. En þetta reyndist vera 3D bíó. Fyrst byrjaði þetta voða sætt. Það var bara lítið sætt fiðrildi að fljúga fyrir framan mann. En svo hófust lætin. Marín grét allan tímann og maður heyrði í salnum að það var hvert einasta barn grátandi. Strákarnir meira að segja lokuðu augunum og við héldum fótunum upp í sætunum þegar kóngulónum var sleppt og allur salurinn öskraði. Svo var þetta að verða búið og þá sagði aðalpersónan: Nú ætlum við að safna öllum pöddunum saman og þá fann maður undir sætinu sínu eins og það væru pöddur að skríða og allir öskruðu. Ég get ekki sagt hvað við vorum fegin að komast út. Marín greyið skalf og tirtraði af hræðslu þó ég hafi haldið fyrir augun á henni allan tímann og Alexander svona kóngulóarhræddur. Við förum ekki aftur á svona 3D bíó.
Við fórum svo í einhver tæki og Maggi fór með strákana í 2 rússíbana. Annar hét Dinosaur og í honum birtust risaeðlur og strákarnir voru víst bara með lokuð augun og horfðu á tærnar á sér. Hinn fór í gegnum fjall og þar skemmtu þeir sér vel. Strákarnir fóru svo með mig í barna rússíbana og ég öskraði eins og smástelpa allan tímann.
Í gær fimmtudag fórum við svo í Blizzard Beach. Við renndum okkur fullt og skemmtum okkur vel. Maggi kom vel brenndur til baka. Ég brann á öxlunum en börnin sluppu alveg.
Í dag eru svo bara þrumur og eldingar. Inn á milli kemur svo úrhelli. Okkur stendur ekki alveg á sama því lætin eru svo nálægt. Og fyrst það er ekki sól í dag þá ætlum við að skellla okkur í Outlet og strauja kortin.
Komin til Florída
Við erum loksins komin til Orlando. Við leigðum okkur villu í Davenport í hverfi sem heitir Westbury. Við erum búin að vera hér í 4 daga og líkar ofsalega vel. Húsið er alveg æðislegt og sundlaugin er algjör nauðsyn. Við erum komin út í laug um 8 á morgnana. Fyrstu 2 dagana fór að rigna eftir hádegi og þá fórum við bara að versla. Í gær og í dag var sól allann daginn. Við eyddum deginum í dag við laugina og allir eru komnir með far eftir sundfötin.
Ég fór í saumabúð í Kissimmee á föstudaginn sem heitir Needle Craft World. Þetta er frekar lítil búð en ótrúlega margt til og frábær konan sem á búðina. Ég var ein að versla í búðinni og ég fékk frábæra þjónustu. Hún átti ekki allt sem ég spurði um en hún bauðst til að panta það og ég má svo sækja það eftir 10 daga. En þetta er það sem ég keypti í þetta skiptið.

Just Nan
Gilded Dragonfly og silki

Little House Needleworks
Little House Neighbourhood og efni
Counting House og efni
Chocolate Shoppe og efni
Yesteryear og efni

Just Nan
Mitten Men
Making Friends og efni
Heart in Hand
Winter Fob og WDW
Svo er ég búin að kaupa alls konar smádót í Wall Mart og JoAnn.

Í þessari viku er planið að byrja að þræða garðana. Við erum ekki enn alveg búin að ákveða hvaða garðar verða fyrir valinu en við erum ákveðin í að klára alla Disney garðana í þessari ferð.
Comments (3)
Comments (5)
Comments (3)