Archive for November, 2008|Monthly archive page
O´holy night dagatal
Ég er búin að sitja marga tíma undanfarið við þetta dagatal. Ég var að vonast til að klára það fyrir 1.des en eins og tíminn virðist fljúga áfram þá er það orðið nokkuð vonlaust. Ég var að klára alla krossana og á nú eftir allan afturstinginn og borðann utan um myndina. Og svo auðvitað allar litlu myndirnar sem á að hengja á það. En ég get gert þær jafn óðum í desember. En hér er mynd.

I´ve been working very hard on this Christmas calendar. I was hoping to finish this before December 1st but I´m kind of runnig out of time. I now got all the backstitching left and the border plus all the little pieces to hang on it. Well we´ll see.
Ég læt fylgja með eina mynd af Tuma og Karmen þar sem þau eru að kúra saman.

Karmen litla hvolpastelpa
Í gær bættist í fjölskylduna lítil hvolpastelpa sem er fædd 28. ágúst. Hún er búin að fá nafnið Karmen.

Hún er ofsalega sæt og dugleg lítil stelpa. Það er mikill leikur í henni og hún og Tumi eru voðalega hrifin hvort af öðru.

Hér er Karmen að kúra hjá stóra bróður

Aðeins að kíkja hvað sé í gangi

Tumi að hvíla sig
Ég er ekki búin að vera að sauma mikið undanfarið. Maggi lenti inn á spítala með streptókokkasýkingu í hné sem getur verið lífshættuleg. Hann lá inni í rúma viku og fær núna heimahjúkrun. Hann þarf að fá lyf 4 sinnum á sólarhring og má ekki stíga í fótinn fyrr en fyrsta lagi 10. nóv. Hann fer um allt á hækjum en leiðist að hanga heima endalaust. Ég bauð honum að lána honum eitthvað að sauma og skil ekkert í af hverju hann þáði það ekki.

Ég byrjaði á dagatali frá Dimension O´Holy Night. Það gengur frekar hægt og það er frekar ólíklegt að ég nái að klára fyrir jól. En hér er mynd af því sem komið er.

Comments (5)
Comments (5)