Um mig

Ég heiti Erla Björk og ég er 35 ára gömul.

Ég er gift Magnúsi og saman eigum við 3 börn:  Alexander Örn, Einar Arnar og Marín Mist.  Í fjölskyldunni eru svo líka 2 litlir hundar Tumi og Patti. Þeir eru báðir loðnir Chihuahua. Tumi er svartur og Patti er ljósbrúnn.

Þetta blogg er um mig og mitt aðal áhugamál sem er kross-saumur. Ég hef verið að sauma frá því ég var lítil. Amma mín og mamma kenndu mér að prjóna og ég á nokkrar flíkur sem ég prjónaði sjálf á Barbie dúkkurnar. Mér var svo kennt að sauma og ég man að einu sinni gisti ég hjá henni ömmu minni og hún keypti lítinn púða handa mér til að sauma í. Ég kláraði hann samdægurs svo við þurftum að fara aftur daginn eftir í Erlu og kaupa annan. Ég prjónaði fullt af peysum á börnin mín þegar þau voru lítil og fór á námskeið og lærði að prjóna dúkkur. En einn daginn datt ég í krosssaum og ég hef ekki prjónað síðan. (Enda ganga börnin bara í flíspeysum núna). Ég reyni að sauma á hverjum degi en auðvitað er maður stundum latur. Ég er áskrifandi að 5 krosssaums blöðum (sem sýnir sýkina). Á tímabili saumaði ég rosalega mikið af kortum og var á fullu að selja. En ég er orðin latari við það og farin að sauma meira fyrir sjálfa mig.

Ég er í íslenskum saumaklúbbi á netinu sem heitir Allt í kross. Þegar ég gekk í þann klúbb kynntist ég fullt af frábærum konum með sama áhugamál. Það er bara svo ótrúlega gaman að sjá hvað aðrir eru að gera og geta deilt með þeim því sem ég er að gera.

Erla Björk